Tix.is

Event info

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð á aðventunni og í aðdraganda jóla. Bubbi bregður ekki út af vananum þetta árið og eru viðkomustaðirnir í ár þeir sömu og í fyrra. Tónleikaröðin hefst i einu vinsælasta tónleikahúsi landsins, Bæjarbíói í Hafnarfirði miðvikudagskvöldið 8. desember. Síðan verður haldið á Akranes og Akureyri og endað á sjálfa þorláksmessu í Eldborgarsal Hörpu.

Tón­leik­arn­ir eru merki­leg­ir fyr­ir þær sak­ir að þetta verður í 37. sinn sem Bubbi stend­ur fyr­ir Þorláksmessutónleikum. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 36 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má altaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Þorláksmessu tónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum á eftirfarandi dögum.

8. desember Bæjarbíó Hafnarfirði
9. desember Bæjarbíó Hafnarfirði
10. desember Bæjarbíó Hafnarfirði
19. desember Bíóhöllin Akranesi
21. desember Hof Akureyri - HÉR er hægt að kaupa miða í Hofi.
23. desember Eldborg Reykjavík - HÉR er hægt að kaupa miða í Eldborg.

Allar nánari upplýsingar eru á facebook síðu Bubba Morthens.