Tix.is

Event info

Leiksýning byggð á ögrandi list og litríku lífshlaupi Ástu Sigurðardóttur

Hin dulúðuga listakona Ásta Sigurðardóttir var lifandi goðsögn í bæjarlífi Reykjavíkur um miðbik síðustu aldar. Myndlist hennar og ritverk vöktu aðdáun en líka hneykslun, og oft urðu skilin á milli lífs þessarar hæfileikaríku en breysku konu og höfundarverks hennar óljós.

Ásta lagði líkama og sál að veði í baráttunni við kreddur samtímans og sjálfa sig; leiftrandi stjarna sem brann upp á ógnarhraða.

Ásta hikaði ekki við að ögra ríkjandi viðhorfum og fylgja kalli hjarta síns, en brenndi kertið í báða enda og féll frá langt fyrir aldur fram. Hún varð táknmynd hinnar frjálsu konu, kynfrelsis nýrra tíma og framúrstefnulistar en mætti fordómum og útskúfun og kynntist hinu dýpsta myrkri sorgar og örvæntingar. En saga Ástu er líka saga um vonir, langanir og drauma sem enn geta ræst.