Tix.is

Event info

Var Gunnar á Hlíðarenda írskur prins?    

 

Bjarni Harðarson rithöfundur leysir ráðgátuna um uppruna Íslendinga í keltneskri eldmessu

-  Var Njáll á Bergþórshvoli kaldrifjaður byltingarleiðtogi sem beið ósigur í baráttu við norræna yfirstétt?

-  Af hverju þegja íslensk fræði um keltneskan uppruna Gunnars á Hlíðarenda?

-  Er Njálssaga í raun saga af kynþáttaóeirðum í fjölmenningarsamfélagi? 

 

Í einstöku uppistandi í rammgerðu keltnesku umhverfi Hellanna við Hellu varpar sögumaður nýju ljósi á Njálssögu og baráttu norrænna manna og Kelta um yfirráð yfir Íslandi. 

Á Ægissíðu, steinsnar frá sögusviði Njálu, er að finna tólf ævaforna manngerða hella. Það hefur ávallt ríkt ákveðin dulúð yfir hellunum en heimamenn telja að Keltar hafi búið í þeim rétt eins og þeir bjuggu í áþekkum hellum á Írlandi.