Tix.is

Event info

Salurinn og landslið píanóleikara á Íslandi fagna 250 ára afmæli Ludwigs van Beethoven með tónleikaröðinni Beethoven í 250 ár.

Beethoven samdi 32 píanósónötur sem spanna nær alla ævi hans eða árin 1795 – 1827. Nú hafa píanóleikarar á Íslandi tekið sig saman og sameinast um að flytja allar píanósónöturnar á 9 tónleikum í Salnum.

Efnisskrá

Tilbrigði í c-moll Wo080
Píanóleikari:      Þóra Kristín Gunnarsdóttir

Píanósónata nr. 7 í D-dúr, opus 10 nr. 3
Píanóleikari:       Thomas Higgerson             

Píanósónata nr. 11 í B-dúr, opus 22
Píanóleikari:       Peter Máté      

Píanósónata nr. 13 í Es-dúr, Opus 27 nr. 1 (Sonata quasi una fantasia)  
Píanóleikari:       Aladár Rácz

Arnar Jónsson leikari les stutta pistla úr þýðingum Árna Kristjánssonar píanóleikara um Beethoven á undan hverri sónötu.

Um flytjendur:

Aladár Rácz hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1999. Hann stundaði fyrst nám í píanóleik við Georges Enescu tónlistarskólann í Búkarest en síðan framhaldsnám við Tónlistarháskólana í Búkarest og Búdapest. Einnig hefur Aladár tekið þátt í mörgum námskeiðum í Evrópu og sjálfur haldið masterclassnámskeið fyrir píanónemendur. Hann hefur leikið á tónleikum víðsvegar um heiminn og unnið til verðlauna fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum, m.a. á Spáni, Ítalíu og í Tékklandi.

Peter Máté hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Hann kennir við Listaháskóla Íslands og Menntaskólann í tónlist. Peter hefur haldið einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum víða á Íslandi og farið í tónleikaferðir til Frakklands, Bretlands, Bandaríkjanna og Austur-Evrópulanda. Hann hefur einnig haldið masterklassa og fyrirlestra við fjölda erlendra háskóla og tónlistarskóla á Íslandi.

Thomas Randal Higgerson lauk license d'enseignement gráðu í píanóleik við Ecole Normale de Musique í París, bachelorgráðu og mastersgráðu í tónmennt við Southern Illinois Universty at Carbondale og loks doktorsprófi við University of Illinois at Urbana-Champaign. Hann hlaut fyrstu verðlaun í tónlistarkeppninni Artist Presentation í St.Lois,Missouri árið 1985. Hann starfaði sem undirleikari, kórstjóri og organisti í Bandaríkjunum. Thomas hefur verið aðalundirleikari Karlakórsins Heimis og kennari við Tónlistarskóla Skagafjarðar. Hann er líka undirleikarinn Arctic Opera á Akureyri og hefur spilað með Sinfónia Norðurlands.

Þóra Kristín Gunnarsdóttir hóf tónlistarnám sitt á Akureyri hjá Dýrleifu Bjarnadóttur og lærði síðar hjá Peter Máté við Tónlistarskólann í Reykjavík. Árið 2011 fluttist hún til Sviss, en þar hefur hún lokikð meistaragr´ðum í píanókennslu og samspili frá tónlistarháskólunum í Luzern og í Zürich. Hún hefur sótt masterklassnámskeið m.a. hjá Simon Lepper, Ewa Kupiec og Thomas Hampson. Þóra er meðlimur í Trio Varietas og Duo Zweisam, auk þess að leika reglulega með ýmsum söngvurum og hljóðfæraleikurum á Íslandi og í Sviss.

 

Beethoven í 250 ár er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogs, Mennta- og menningarmálaráðuneyti – Tónlistarsjóði og Tónlistarfélagi Reykjavíkur.