Listahátíð Samúels í Selárdal
Teitur Magnússon / Monika Abendroth / Berta Ómarsdóttir / Svanur Vilbergsson / Kómedíuleikhúsið og fleiri góðir gestir
Listasafn Samúels stendur fyrir listahátíð í Selárdal um verslunarmannahelgina. Meðal þeirra sem fram koma eru Teitur Magnússon og Monika Abendroth. Þórarinn Sigurbergsson leikur á gítar og Berta Ómarsdóttir mun syngja við undirleik Svans Vilbergssonar. Í boði verður leiðsögn í gönguferð í Selárdal, listasmiðja fyrir fjölskylduna, myndlistarsýning í Listasafni Samúels, matur úr héraðinu, kaffi og meðlæti, brennusöngur. Karina Hanney Marrero sér um jóga á morgnana. Loks mun Kómedíuleikhúsið flytja leikrit um Samúel og sýnd verður kvikmyndin Steyptir draumar í kirkjunni.
Hátíðarpassi kostar kr. 9000 frá föstudegi til sunnudags, 31. júlí til 2. ágúst.
Nánari upplýsingar á facebook síðu Listasafns Samúels.