Tix.is

Event info

DIMMA verður með alvöru rokktónleika um land allt í sumar.

DIMMU þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarin ár og hafa þeir gefið út fimm breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.

Í lok síðasta árs sendi sveitin frá sér fyrsta lagið með nýrri liðskipan en það var lagið „Þögn“ sem notið hefur talsverðra vinsælda.

Þeir fylgdu því svo eftir með laginu „Almyrkvi“, sem var framlag DIMMU til Söngvakeppninnar 2020.

Þessi lög verða að sjálfsögðu leikin á tónleikunum ásamt úrvali af eldri perlum sveitarinnar og því ætti enginn rokkunnandi að láta sig vanta á tónleika DIMMU.

Fjölskyldutónleikar eru í samstarfi við Tónlistarsjóð.

DIMMA:
Stefán Jakobsson : Söngur
Ingó Geirdal : Gítar
Silli Geirdal : Bassi
Egill Örn Rafnsson : Trommur


2. Júlí - Höfn í Hornafirði - Hafið  - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
2. Júlí - Höfn í Hornafirði - Hafið - Kl. 21.00

3. Júlí - Egilsstaðir - Valaskjálf - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
3. Júlí - Egilsstaðir - Valaskjálf - Kl. 21

4. Júlí - Reykjahlíð við Mývatn - Úlfaldi úr Mýflugu Tónlistarhátíð Miðasala hér:  https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10275/

10. Júlí - Siglufjörður - Kaffi Rauðka - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
10. Júlí - Siglufjörður - Kaffi Rauðka - Kl. 21

11. Júlí - Akureyri - Græni Hatturinn  - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR Miðasala hér  https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10270/
11. Júlí - Akureyri - Græni Hatturinn  - Kl. 21 Miðasala hér  https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10065/

23. júlí - Grindavík - Fish house - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
23. júlí - Grindavík - Fish house - Kl. 21

24. Júlí - Hveragerði - Skyrgerðin  - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
24. Júlí - Hveragerði - Skyrgerðin - Kl. 21

25. júlí - Flúðir - Félagsheimilið - Kl. 16 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
25. júlí - Flúðir - Félagsheimilið - Kl. 21