Tix.is

Event info

ARG viðburðir í samstarfi við Gull léttöl & Hard Rock Cafe kynna með rífandi stolti:

ALDAMÓTATÓNLEIKAR Í HÖRPU

Fannst þér gaman að fara á ball eða horfa á popptíví?

Langar þig að hverfa aftur til síðustu aldamóta og upplifa svakalegustu nostalgíu ever?

Ef svarið er já við þessum spurningum ertu stálheppin/n því landslið íslenskra poppara ætla að troða upp í Hörpu 26. júní nk.

Þau sem fram koma eru:

* XXX Rottweiler
* Birgitta Haukdal
* Magni - Á móti sól
* Hreimur - Land & Synir
* Gunni Óla - Skítamórall
* Einar Ágúst - Skítamórall
* Valur - Buttercup
* Íris Kristins - Buttercup
* Sverrir Bergmann

Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið í hljómsveitum sem voru gríðarlega vinsælar og virkar í kringum síðustu aldarmót. Og gott betur en það, því sum af þessum böndum eru ennþá í fullu fjöri og allir söngvararnir eru enn starfandi sem tónlistarfólk.

Hljómsveitarstjóri verður hinn eini sanni Viggi úr Írafár og mun hann ásamt nokkrum af færustu hljóðfæraleikurum landsins sjá til þess að allur flutningur verði upp á tíu.

https://www.facebook.com/events/209854760128895

ÞÉR ER EKKI BOÐIÐ!!!...