Hipsumhaps í Havarí
Það er með gríðarmikilli tilhlökkun sem við tilkynnum að vonarstjörnur íslenskrar dægurtónlistar, Hipsumhaps, leika í Havarí laugardagskvöldið 4. júlí. Láttu ekki þennan einstaka viðburð framhjá þér fara og tryggðu þér miða!
Ásgeir í Havarí
Það er okkur feikileg ánægja að tilkynna að Ásgeir mætir í Havarí öðru sinni þann 15. júlí næstkomandi. Þeir félagar Ásgeir og Júlíus heiðruðu Havarí með frábærum tónleikum árið 2018, kvöldstund sem lét engan ósnortinn. Við hlökkum til að taka á móti Ásgeiri öðru sinni og skorum á ykkur að tryggja ykkur miða í forsölu hér
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10113/
FM Belfast í Havarí
FM Belfast mæta í Havarí laugardagskvöldið 25. júlí næstkomandi. Þessir árlegu dansleikir FM Belfast eru löngu orðnir goðsögn og þetta kvöld verður engin miskunn sýnd. Verið viðbúin að tæta upp dansflórinn á sveitaballi ársins!
GÓSS í Havarí
Hljómsveitin GÓSS (Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar) mæta í Havarí sunnudagskvöldið 26. júlí. Þau eru á ferð um landið að leika sína undurfögru tóna og við hlökkum til að eiga dásamlega kvöldstund með þessu heiðursfólki. Tryggið ykkur miða hér https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10119/