Tix.is

Event info

Hljómsveitin GÓSS (Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar) verður á flakki víða um land í júlí til að fagna sumrinu.

Tónleikarnir eru eftirfarandi:
fös, 3. júl - Hvolsvöllur, Midgard Base Camp
lau, 4. júl - Sólheimar í Grímsnesi (enginn aðgangseyrir)
lau, 4. júl - Þórsmörk, Básar (enginn aðgangseyrir)

þri, 14. júl - Fellsströnd, Vogur sveitasetur
mið, 15. júl - Bjarnarfjörður, Hótel Laugarhóll
fim, 16. júl - Patreksfjörður, Flak (enginn aðgangseyrir)
fös, 17. júl - Bíldudalur, Skrímslasetrið
lau, 18. júl - Flateyri, Vagninn

sun, 19. júl - Ísafjarðardjúp, Heydalur
þri, 21. júl - Akureyri, Græni hatturinn
fim, 23. júl - Húsavík, Gamli baukur
fös, 24. júl - Seyðisfjörður, Herðubreið
lau, 25. júl - Neskaupstaður, Beituskúrinn
sun, 26. júl - Berufjörður, Havarí
mán, 27. júl - Höfn, Hafið

Hljómsveitin GÓSS hefur slegið í gegn með tónleikum sínum um land allt, en einnig vakti fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Góssentíð, mikla athygli og var m.a. tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Nýlega kom síðan út ábreiða af laginu Sólarsamba og hefur hún vægast sagt slegið í gegn á öldum ljósvakans sem og annars staðar.

Á tónleikum GÓSS verður boðið upp á létt og skemmtilegt prógramm þar sem aðalmarkmiðið er að skapa hugljúfa kvöldstund fyrir tónleikagesti.