Tix.is

Event info

The Eagles þarf varla að kynna fyrir neinum en hún er ein vinsælasta hljómsveit fyrr og síðar. The Eagles hefur selt yfir 200 milljón hljómplötur á heimsvísu, en bandið var stofnað árið 1971 og er enn starfandi í dag.

Hver þekkir ekki lög á borð við Hotel California, Take it easy, Lying Eyes, Tequila Sunrise, Desperado og Peaceful easy feeling svo fátt sé nefnt. Hljómsveitin á ótal mörg vinsæl lög sem hafa verið mikið spiluð í gegnum árin.

Þeir íslensku tónlistarmenn sem ætla að flytja þessa mögnuðu slagara Eagles eru þeir Jógvan Hansen, Matthías Matthíasson og Vignir Snær Vigfússon og hafa þeir verið fremstir á sínu sviði í mörg ár og ætla þeir þrír að flytja helstu lög Eagles. Enginn sannur Eagles aðdáandi verður svikinn af að láta sjá sig í Bryggjuni í Grindavík þann 5. Júní 2020