Gísli Magna & co flytja valdar perlur úr lagasafni afa söngvarans á notalegum tónleikum í Háteigskirkju 4.júní & Félagsheimili Patreksfjarðar 5.júní. Eftir Steingrím liggur fjöldinn allur af lögum og tónverkum sem hann samdi á ferli sínum og unnu einhver þeirra til verðlauna í danslagakeppni SKT. Tónleikunum verður fylgt eftir með geisladiski síðar á árinu.
Söngur: Gísli Magna
Píanó: Sunna Gunnlaugs
Gítar: Pétur Valgarð Pétursson
Trommur: Scott McLemore
Bassi: Gunnar Hrafnsson
Raddir: Hafsteinn Þórólfsson & Gísli Didriksen