Tix.is

Event info

Verið hjartanlega velkomin í KakóRó þar sem við róum líkama, huga og sál með öndunaræfingum, hljóðbaði og djúpri slökun. Hreint kakó frá Guatemala og hljómar kristalalkemíuskála, gongsins og fleiri hljóðgjafa hjálpa til við að auka ró og tengingu inn á við .

KakóRó kostar 4000 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is. Ljósheimar eru í Borgartúni 3, 3. hæð.

Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Hér má lesa nánar um kakó.

KakóRó leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari og tónheilari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil og kakóið hefur reynst henni dásamlegur hjálpari í gegnum ýmis verkefni í lífinu. Hér má lesa meira um Kamillu.