Tix.is

Event info

Verið hjartanlega velkomin í kakó nidra þar sem við hlöðum okkur eftir vinnuvikuna með yoga nidra, svokölluðum jógískum svefn. Við drekkum 100% hreint kakó frá Guatemala til að auka slökun líkamans og tengingu inn á við.

Með iðkun yoga nidra er hægt að ná mjög djúpri slökun með fullri vitund, á dásamlegum stað á milli svefns og vöku þar sem líkaminn hvílist á meðan undirmeðvitundin er leidd í djúpt slökunarástand handan skilningarvitanna þar sem engin streita býr og fullkomin eining ríkir. Yoga nidra getur losað um líkamlega, andlega og tilfinningalega spennu en einn klukkutími af yoga nidra veitir hvíld á við fjögurra tíma svefn. Yoga nidra hefur meðal annars reynst vel í að draga úr streitu og bæta svefn.

Kakó nidra kostar 3000 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is. Ljósheimar eru í Borgartúni 3, 3. hæð.

Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Hér má lesa nánar um kakó.

Kakó nidra leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari og tónheilari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil og kakóið hefur reynst henni dásamlegur hjálpari í gegnum ýmis verkefni í lífinu. Hér má lesa meira um Kamillu.