Tix.is

Borgarleikhús

Event info

Frumsýnt 14. september.

Allt sem er frábært fær fólk til að hlæja þar til það skilur loks hvers vegna það grætur! Hvernig bregst ungur sonur við myrkum hugsunum móður sinnar? Hann býr auðvitað til lista yfir allt sem er frábært í heiminum og gerir lífið þess virði að lifa því: Rjómaís, guli liturinn, kung fu-myndir, vatnsslagur, mega horfa fram eftir á sjónvarpið, fólk að detta, rússíbani ... Tuttugu árum síðar er listi unga drengsins í fullu gildi og hefur lengst svo um munar - í ævilanga áminningu um það að gleði er ekki síst að finna í hlutum sem virðast léttvægir. 

Vala Kristín Eiríksdóttir stendur ein á sviðinu í hlutverki manneskju sem gerir atlögu að depurðinni og lífsleiðanum, með aðstoð áhorfenda og listann góða að vopni, og segir í leiðinni hrífandi sögu af ást, sorg og ís með dýfu. Höfundur er Duncan Macmillan, sá hinn sami og skrifaði verkin Andaðu og Fólk, staðir og hlutir sem sló í gegn í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári. Þetta einfalda en snjalla verk hefur verið sett á svið víða um heim og hlotið gríðarlega góðar viðtökur gagnrýnenda jafnt sem áhorfenda og birtist hér í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur.

Listrænir stjórnendur:

Höfundur: Duncan Macmillan

Þýðing: Kristín Eiríksdóttir

Leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson

Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir

Lýsing: Þórður Orri Pétursson

Hljóð: Baldvin Þór Magnússon

Aðstoðarleikstjórn: Hlynur Páll Pálsson

 

Leikari:  Vala Kristín Eiríksdóttir