Skip to content

Tix.is

Borgarleikhús

  • Thu 9 Oct 2025 at 08:00 PM
  • Sun 12 Oct 2025 at 08:00 PM
  • Fri 17 Oct 2025 at 08:00 PM

Ticket price:6.950 - 7.950 kr.

Event info

Skammarþríhyrningurinn

Frumsýnt: 4. október                 Litla svið

Verkið Skammarþríhyrningurinn gerist í fjarlægri framtíð. Menningarstríðinu er lokið: kynrænt sjálfræði, hinsegin mannréttindi og kvenfrelsi heyra sögunni til. Bakslagið hefur náð endatakmarki sínu.

Í þessum ímyndaða hliðarveruleika við daufari enda regnbogans stendur hópur sérfræðinga fyrir glæstri opnun á sögusafni um hina myrku tíma pólitíska rétttrúnaðarins sem við nú lifum, En verkefni þeirra er afar flókið því bækurnar hafa allar verið brenndar, heimildirnar eru horfnar og mannlegur fjölbreytileiki utan strangrar tvíhyggju hefur verið bannaður og ritskoðaður úr sögunni.

Við fylgjumst með þessum hópi reyna að púsla saman mynd af mannréttindaparadísinni sem eitt sinn var á Íslandi og svara aðkallandi spurningum. Hvað í ósköpunum var Pride? Hvernig bjargaði J.K. Rowling kvennaklósettinu frá alþjóðlegum nauðgarasamtökum? Hverskonar te drukku svokallaðar dragdrottningar? Hvar fór innræting barna fram? Hver var þessi Hán?

Leikhópurinn Stertabenda var stofnaður 2016 og hefur þróað sérstætt sviðstungumál Camp aðferða og hinsegin fagurfræði þar sem húmor og gáski ráða för í vægðarlausri krufningu á samtímanum. Fyrri verk hópsins eru Stertabenda (2016), Insomnia (2018) og Góðan daginn, faggi (2021).

Aðstandendur:

Höfundur: Bjarni Snæbjörnsson og leikhópurinn

Leikstjóri: Gréta Kristín Ómarsdóttir

Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger

Dramatúrg: Egill Andrason

Tónlist: Axel Ingi Árnason í samstarfi við Egil Andrason

Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson

Dans- og sviðshreyfingar: Cameron Corbett

Leikgervi: Ray Milano

Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson, Bjarni Snæbjörnsson, Embla Guðrúnar-Ágústsdóttir, Fannar Arnarsson, Sindri Sparkle og Vigdís Halla Birgisdóttir

Framleiðendur: Davíð Freyr Þórunnarson og Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Verkefnið er styrkt af Sviðlistasjóði og Listamannalaunum.

Framleitt af Stertabendu í samstarfi við MurMur Productions og Borgarleikhúsið