Tix.is

Borgarleikhús

Event info

Teprurnar

Andri og Eva hafa ekki stundað kynlíf í fjórtán mánuði og fjóra daga. Samt er ekkert að. Ekki þvælast andvökur og brjóstagjafir fyrir barnlausu parinu; engin kulnun í vinnunni; engin risvandamál eða hormónatruflanir; ekki skortir ástina og löngunin er svo sannarlega til staðar. En ekkert gengur. Það er komið að úrslitastundu. Þau eru komin í leikhúsið til að gera það! Skoska leikskáldið og leikstjórinn Anthony Neilson er helst þekktur fyrir óvægin og erfið verk á borð við Ritskoðarann og Penetrator sem hafa bæði verið sýnd hér á landi. Hann hefur þó skrifað margs konar ólík verk, bæði fyrir leikhús og kvikmyndir og með Teprunum sýnir hann á sér nýjar hliðar. Þar eru samskipti kynjanna í brennidepli en verkið einkennist fyrst og fremst af leiftrandi húmor þótt broddurinn sé aldrei langt undan. Hér fara leikararnir góðkunnu Vala Kristín Eiríksdóttir og Jörundur Ragnarsson á kostum í hlutverkum Evu og Andra undir styrkri stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar.

Höfundur: Anthony Neilson
Þýðing: Ingunn Snædal
Leikstjórn: Hilmir Snær Guðnason
Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui
Lýsing: Fjölnir Gíslason
Hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir

Leikarar: Jörundur Ragnarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir