Tix.is

Borgarleikhús

Event info

Eitruð lítil pilla

Það er allt í himnalagi hjá Mary Jane. Eiginmaðurinn Steve er í góðri stöðu, sonurinn Nick var að komast inn í Harvard og dóttirin Frankie… tja… hún er svo skapandi og lífleg. Steve vinnur reyndar 60 tíma á viku, Nick er að bugast undan væntingunum sem til hans eru gerðar og Frankie reynir að fóta sig sem ættleidda tvíkynhneigða dóttir úthverfadrottningarinnar. En Mary Jane er í lagi. Þessar nokkru ópíóða töflur á dag eru bara til að slá rétt aðeins á sársaukann eftir bílslysið í fyrra. Smátt og smátt er farið að kvarnast upp úr fallegu fjölskyldumyndinni sem Mary Jane sendir með jólakortinu á hverju ári og áður en yfir lýkur þarf öll fjölskyldan að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir - óþægilegar staðreyndir sem eru kannski grundvöllur lífsins þegar betur er að gáð.

Söngleikurinn Eitruð lítil pilla byggir á tónlist af plötu Alanis Morissette, Jagged Little Pill, einni áhrifamestu plötu tíunda áratugarins og einni söluhæstu hljómplötu allra tíma. Tónlist Alanis einkennist af óbeisluðum krafti og hráum og hnitmiðuðum textum. Lög á borð við „You Oughta Know“, „You Learn“ og „Ironic“ eru ótvírætt meðal helstu einkennislaga tíunda áratugarins.

Höfundur: Diablo Cody
Tónlist og söngtextar: Alanis Morissette
Þýðing: Matthías Tryggvi Haraldsson og Ingólfur Eiríksson
Leikstjórn: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Danshöfundur: Saga Sigurðardóttir
Tónlistarstjóri: Karl Olgeirsson
Leikmynd: Eva Signý Berger
Búningar: Karen Briem
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson

Myndbandshönnun: Elmar Þórarinsson
Leikgervi: Andrea Rut Andrésdóttir og Hildur Emilsdóttir

Leikarar: Aldís Amah Hamilton, Birna Pétursdóttir, Rán Ragnarsdóttir, Esther Talía Casey, Hannes Þór Egilsson, Haraldur Ari Stefánsson, Hákon Jóhannesson, Íris Tanja Flygenring, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Marinó Máni Mabazza, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Sigurður Ingvarsson, Sölvi Dýrfjörð, Valur Freyr Einarsson og Védís Kjartansdóttir.

Hljómsveit:

Stefán Magnússon
Ingibjörg Elsa Turchi
Tómas Jónsson
Þorvaldur Þorvaldsson
Þorbjörn Sigurðsson