Tix.is

Borgarleikhús

Event info

Fre´ttau´tsendingar eiga minni i´ þjo´ðarsa´l I´slendinga. Leikmyndirnar og stefin endurspegla ti´ðaranda hvers ti´ma, og o´gjo¨rningur að finna sannari spegil a´ samti´mann en ny´jasta fre´ttati´mann. Fréttir eru sannleikur, og flutningur á þeim sannasti performansinn, enda ekki um neinn leik né lygi að ræða heldur hlutlausa miðlun upplýsinga. Eða hvað? Hvað leynist handan myndavélarinnar? Af hverju talar fréttaþulurinn svona skringilega? Eru þessar fréttir allar eins skrifaðar? Eru þessar endalausu sjónvarpsútsendingar kannski að renna sitt skeið? Erum við orðin dofin?

 

Sviðslistahópurinn BEIN ÚTSENDING ætlar að gera þessum óljósu mörkum sannleikans og sviðsetningarinnar skil með því að rannsaka hina performatívu eiginleika fréttaflutnings; fagurfræði, form, aðferðir og umgjörð. Niðurstöður hópsins verða kynntar fyrir áhorfendum á sviði, í beinni útsendingu, þar sem allt er undir og ekkert má klikka.

 

Kæru landsmenn, í fréttum er þetta helst.

Þátttakendur:

Annalísa Hermannsdóttir – sviðshöfundur

Hákon Örn Helgason – sviðshöfundur

Katrín Helga Ólafsdóttir – tónskáld

Magnús Thorlacius - sviðshöfundur