When the Bleeding Stops - Lovísa Ósk Gunnarsdóttir (IS)
(ENG)
As a woman in her early forties, dancer and choreographer Lovísa Ósk Gunnarsdóttir has become fascinated by menopause and middle-aged women. In her new performance work “When the Bleeding Stops”, she addresses the excruciating silence and taboo that seems to engulf this topic in Western society.
Working with a group of extraordinary middle-aged women from across Icelandic society, “When the Bleeding Stops” invites audiences into a world of vulnerability, shame, empathy and humour. Transporting us into the privacy of their homes, the work dives deep into the many layers of the female experience associated with menopause and invites us to laugh, cry and celebrate with these women.
Participants: Arndís Guðmundsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir, Ingibjörg Reynisdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Ósk Ebenesersdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Soffía Karlsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir and many more.
Bio: Lovísa Ósk Gunnarsdóttir has danced her whole life. From doing daily dance performances in her living room at the age of four to a sixteen-year career as a member of the Iceland Dance Company, Lovísa has toured the world, continually creating, performing and working with a wide range of amazing artists. Three years ago, she suffered an injury that challenged her to rethink her relationship with dance and her body. Lovísa has since been actively finding new ways to connect with the body, its deeply embedded knowledge, history and experience.
(ICE)
Undanfarin tvö ár hefur Lovísa Ósk Gunnarsdóttir verið heilluð af breytingaskeiðinu. Í verkinu sínu “When the Bleeding Stops” fjallar hún um þögnina og skömmina sem virðist einkenna þetta umfjöllunarefni í vestrænu samfélagi og persónulega reynslu sína af því að eldast sem dansari. Lovísa hefur undanfarið unnið með stórum hópi af mögnuðum, miðaldra konum víðs vegar að úr íslensku samfélagi. Áhorfendum er boðið inn í heim, fullan af næmni, skömm, samkennd og húmor. Verkið flytur okkur eitt augnablik inn á heimili kvennanna, kafar djúpt í hina marglaga reynslu og upplifun tengda breytingaskeiðinu og býður okkur að hlæja, gráta og fagna með þessum konum.
Bio
Lovísa hefur dansað síðan hún man eftir sér. Hún byrjaði að gera danssýningar heima í stofu þegar hún var fjögurra ára, dansaði í sextán ár fyrir Íslenska dansflokkinn, hefur ferðast og sýnt út um allan heim, tekið þátt í hverju sköpunarferlinu á eftir öðru og unnið með breiðum hópi af framúrskarandi listamönnum. Fyrir tveimur árum slasaðist Lovísa sem varð til þess að hún fór að skoða á nýjan hátt samband sitt við dansinn og líkamann. Síðan þá hefur Lovísa verið að rannsaka mismunandi leiðir til að tengjast líkamanum, hans djúpu visku, sögu og reynslu.
Þátttakendur: Arndís Guðmundsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir, Ingibjörg Reynisdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Ósk Ebenesersdóttir , Sigrún Ólafsdóttir, Soffía Karlsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir og margar fleiri.
RDF - Reykjavík Dance Festival