Bergur Ebbi á að baki langan feril sem rithöfundur,
uppistandari og fyrirlesari og Snorri Helgason sem starfað hefur sem
tónlistarmaður í hálfan annan áratug og á að baki fjölmargar sólóplötur og
leikhúsverkefni.
Saman hafa þeir gefið út hlaðvarpið Fílalag frá árinu 2014 og eru þættirnir
orðnir á þriðja hundrað talsins og uppsöfnuð hlustun um milljón spilanir.
Nú gefst áhorfendum færi á að sjá þessa tvo skemmtilegu listamenn fíla lag
á sviði. Fílalag fjallar um tónlist – hver sýning gengur út að kryfja eitt
dægurlag til mergjar – en leiðin að kjarna tónlistarinnar liggur í gegnum alla
dægurmenninguna og dýpri þætti tilverunnar. Leikhúsgestir eiga von á
ferðalagi með reyndum sviðslistamönnum og er hver sýning einstök, enda nýtt lag
tekið fyrir í hvert sinn.
Bergur Ebbi
Snorri Helgason