Tix.is

Bíó Paradís

Event info

Ekki missa af Stellu í Orlofi á einstakri prjónabíósýningu sunnudaginn 26. maí kl 20:00 í Bíó Paradís!
Húsið opnar kl.19:00 fyrir þá sem vilja prjóna/hekla sig í gírinn, einnig verður hægt að munda prjónana og heklunálar í salnum á meðan sýningunni stendur.

Hin ógleymanlega Stella í orlofi fjallar um Stellu og baráttu hennar við geðilla karla, tryllt börn, alkóhólista, flugmenn, Lionsklúbbinn Kidda, danskar drósir og laxeldi. Myndin er nú komin á stafrænt form, rúmlega þrjátíu árum eftir frumsýningu.

Ein ástsælasta íslenska gamanmynd allra tíma með þeim Eddu Björgvinsdóttur, Gesti Jónassyni, Þórhalli Sigurðssyni (Laddi) í aðalhlutverkum, í leikstjórn Þórhildar Þórleifsdóttur eftir handriti Guðnýju Halldórsdóttur.