Skip to content

Tix.is

Bæjarbíó

  • Fri 24 Oct 2025 at 08:00 PM

Ticket price:9.990 kr.

Event info

Hljómsveitina HAM þarf ekki kynna fyrir rokkþyrstum. HAM er ein áhrifamesta rokksveit landsins, lífsseig með afdæmum, dýrkuð og dáð af fjölmörgum aðdáendum sínum.

Nú eru 37 ár síðan HAM lék á sínum fyrstu tónleikum og er því tónaspili hvergi nærri hætt. Hljómsveitin er eins og gott vín sem batnar bara með aldrinum. HAM nýtur ómældrar virðingar fyrir að fara alltaf sínar leiðir.  

Að sjá og heyra HAM á tónleikum er einstök upplifun og lífsbreytandi. Hafir þú upplifað sæluna veistu vel að við erum öll HAM og það er alltaf ástæða til að staðfesta það, aftur og aftur. Hafir þú enn ekki upplifað HAMsælu máttu engan tíma missa. Sjáumst.