The Vintage Caravan í Bæjarbíó 31. Maí.
The Vintage Caravan er ein kraftmesta rokksveit landsins og
hefur hun verið á ferð og flugi um heiminn á tónleikaferðalögum síðasta rúma
áratuginn. Er því löngu tímabært að þeir stígi aftur á svið í Bæjarbíói.
Sveitin hélt nýverið ferna Led Zeppelin heiðurstónleika í Hörpu og Hofi sem var
tekið frábærlega í.
Sjötta breiðskífa sveitarinnar er væntanleg seinna í ár og ætlar hljómsveitin
að gefa gestum Bæjarbíós forsmakk á nýtt efni í bland við eldri smelli.
Liðsmenn The Vintage Caravan hlakka mikið til að sjá ykkur öll!