Skip to content

Tix.is

Bæjarbíó

  • Mar 22nd 20:00

Ticket price:7.990 kr.

Event info

SúEllen er ein lífseigasta hljómsveit Íslandssögunnar en hún var stofnuð 1983 í Neskaupstað.

Blómaskeið hljómsveitarinnar var frá 1987-1994. Síðan þá hefur hljómsveitinn átt góða spretti í tónleikahaldi og útgáfu á safnlötu og plötu með nýju efni.

Hljómsborðleikari sveitarinnar Ingvar Lundberg lést árið 2022 og varð það hljómsveitinni, vinum og fjölskyldu mikið og þungt áfall.

Ekki var ljóst hvort SúEllen myndi starfa áfram. 

Eftirlifandi meðlimir hafa undanfarið hugsað hvort þeir ættu að hætta, hrökkva eða stökkva? Eftir góða fundi og hvatningu vina og aðdáanda er nú ákveðið að SúEllen ætlar að taka stökkið - spila, syngja og njóta. Allt í anda Ingvars!

Hann bað okkur á dánarbeðinu að hætta aldrei að hafa gaman og hvað er gaman? Jú tónleikar með SúEllen! Eða það finnst okkur! 


Guðmundur R. Gíslason, söngur og kassagítar

Steinar Gunnarsson, bassi og söngur

Bjarni Halldór Kristjánsson, gítar og söngur

Jóhann Geir Árnason trommur 

Hljómborðleikarinn verður kynntur síðar, svo og gestir tónleikanna