Blúsfélag Reykjavíkur stendur fyrir glæsilegri blúsdagskrá á Björtuloftum í Hörpu frá klukkan 13 - 15 á Menningarnótt þar sem fram koma hljómsveitirnar Ungfrúin góða og búsið, CC Fleet Blues Band og Singletons.
Hvar: Á Björtuloftum
Hvenær: Frá 13 - 15
Fyrir hverja: Allt tónlistaráhugafólk
Aðgangur er ókeypis
Tónleikarnir eru liður í dagskrá Hörpu á Menningarnótt í
samstarfi við Blúsfélag Reykjavíkur.
13:15 - 13:45
Singletons
Hljómsveitin Singletons spilar blús og blúsrokk af krafti og mýkt eftir því sem
við á. Hljómsveitina skipa Hannes Birgir Hjálmarsson, söngur og gítar, Gunnar
Örn Sigurðsson, gítar, Steinar Björn Helgason, trommur, Árni Björnsson, bassi
og Ragnar Ólason, píanó.
13:55 - 14:25
CC Fleet Blues Band
CC Fleet Blues Band flytur kraftmikinn blús með áhrifum úr fönk, sól og rokki.
Hljómsveitina skipa Jón Ingiberg Jósteinsson, söngur og gítar, Gunnar Örn
Sigurðsson, gítar, Jakob Viðar Guðmundsson, bassi, Jóhann Vilhjálmsson, trommur
og Ragnar Ólason píanó.
14:35 - 15:05
Ungfrúin góða og búsið
Ungfrúin góða og búsið er sex manna hljómsveit sem spilar rokkaðan blús.
Hljómsveitina skipa Kristjana Þórey Ólafsdóttir, söngur, Árni Björnsson, gítar,
Aðalsteinn Snorrason, gítar, Helgi Georgsson, hljómborð og söngur, Jón Bjarki
Bentsson, bassi og Skúli Thoroddsen, trommur.