Sigríður Hjördís Önnudóttir hóf tónlistarnám sitt árið 2002 á Akranesi, leið hennar lá þaðan í Tónlistarskóla Reykjavíkur í frekara nám undir handleiðslu Hallfríðar Ólafsdóttur. Sigríður var einn af sigurvegurum einleikarakeppni Tónlistarskólans í Reykjavík árið 2013 og spilaði þar af leiðandi einleik með strengjasveit skólans. Haustið 2014 flutti Sigríður til Antwerpen og stundaði þar bakkalárnám í konunglega listaháskólanum í Antwerpen undir handleiðslu Aldo Baertens þar til hún gekk í Listaháskóla Íslands haustið 2015. Í nóvember 2015 var Sigríður einn einleikaranna sem spiluðu einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum “Ungir einleikarar”. Sigríður útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með bakkalárgráðu haustið 2017. Hún hélt út til Pittsburgh árið 2022 og útskrifaðist með meistaragráðu frá Carnegie Mellon University árið 2024 þar sem hún hafði notið leiðsagnar Lorna McGhee. Sigríður Hjördís er búsett á Íslandi og starfar sem flautukennari og afleysingamanneskja í Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.
Velkomin heim er tónleikaröð á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.