Skip to content

Tix.is

Harpa

  • 30. september 2025 kl. 20:00

Miðaverð:6.900 kr.

Um viðburðinn

Lokatónleikar 20 ára afmælisferðar VOCES8 ásamt 4 íslenskum kórum.

Á lokatónleikum VOCES8 í þessari afmælisferð hópsins til Íslands, gefst einstakt tækifæri til að hlýða á söng þessa frábæra breska sönghóps og árangur vinnusmiðju með framúrskarandi íslenskum kórum ásamt samsöng allra í lokin.

Kórarnir sem taka þátt í vinnusmiðju VOCES8 eru:
Hljómeyki, stjórnandi Stefan Sand
Hljómfélagið, stjórnandi Fjóla Kristín Nikulásdóttir
Kammerkór Norðurlands, stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson
Kordía, kór Háteigskirkju, stjórnandi: Erla Rut Káradóttir