Tix.is

Um viðburðinn

SVO TIL UPPSELT Í ÖLL SVÆÐI
ÁSDÍS HITAR UPP!

Zara Larsson snýr aftur til Íslands og heldur sannkallaða stórtónleika í Eldborg, Hörpu laugardaginn 16. mars 2024.

Zara er með milljarða spilana á streymisveitum, fjöldan allan af platínumplötum og gríðarlega stóran aðdáendahóp um heim allan. Hún hélt vel heppnaða og uppselda tónleika í Laugardalshöll árið 2017 og hitaði svo upp fyrir Ed Sheeran á Laugardalsvellinum 2019. Hún er því öllum landsmönnum góðkunnug og mikill fengur í að fá hana aftur til landsins.

Tilkynnt hefur verið að nýjasta poppstjarna Íslands, Ásdís, hitar upp. Það er óhætt að lofa ógleymanlegri kvöldstund þegar Zara og Ásdís stíga á stokk í Hörpu.

DAGSKRÁ KVÖLDSINS:
19:30 - Salur opnar
20:00 - Tónleikar hefjast*
22:10 - Áætlaður endir**
* Athugið: Ekkert aldurstakmark er á tónleikana.
** Dagskrá er birt með fyrirvara og getur riðlast.

VERÐSVÆÐI:
A+ svæði: 24.990 kr. (fjólublátt á mynd)
A svæði: 22.990 kr. (gult á mynd)
B svæði: 21.990 kr. (blátt á mynd)
C svæði: 20.990 kr. (grænt á mynd)
E svæði: 15.990 kr. (bleikt á mynd)

Mynd af sal hér.  

Umsjón: Sena Live