Tix.is

  • 25. apr. - kl. 12:00
Miðaverð:2.990 kr.
Um viðburðinn

BARNASKEMMTUN Í HÁSKÓLABÍÓI.

Það eru tveir hlutir sem klikka aldrei, eftir nóttu kemur alltaf dagur og það er aldrei gott veður á sumardaginn fyrsta  Þess vegna ákváðum við að setja upp barnaskemmtun innandyra.

Ef þig langar að gera eitthvað nýtt og spennandi á sumardaginn fyrsta með barninu/börnunum þá er kjörið að kíkja í Háskólabíó, því þangað ætla að mæta vinsælustu barnaskemmtikraftar landsins til að gleðja lítil hjörtu

Þau sem fram koma eru:

 Sveppi
 Latibær
 Lára og Ljónsi
 Sylvía & Árni

Ekkert verður til sparað til að gera skemmtunina sem allra glæsilegasta fyrir börnin og verður öll umgjörð eins og best verður á kosið

Skemmtunin stendur í ca 1,5 klst og eru börn á öllum aldri boðin hjartanlega velkomin

Þeir sem eru á póstlista tix.is komast fram fyrir röð og geta keypt miða frá og með 15. mars.

 Hér skráir þú þig á póstlistann: http://eepurl.com/dx1lzL

Almenn miðasala hefst 18. mars og verður inn á tix.is/sumar

 Miðaverð litlar 2.990 kr.
 Eitt verð, óháð aldri eða staðsetningu í sal.