Tix.is

  • 27.-30 des 2017
  • 4 dagsetningar
Um viðburðinn

HÁTÍÐARPASSAR OG DAGPASSAR Í BOÐI!

Um er að ræða veigamikla listahátíð sem Sigur Rós stendur fyrir frá 27. til 30. desember þar sem vinir og samverkafólk hljómsveitarinnar munu koma fram í öllum mögulegum og ómögulegum plássum sem finna má í Hörpu.

27. desember (miðvikudagur)Blanck Mass (UK), Alexis Taylor (Hot Chip) (UK), Dimma (IS), Kristín Anna (IS), Hilmar Örn Hilmarsson, Steindór Andersen & Páll á Húsafelli (IS), Alex Somers (US), Árni (IS), Ingi Garðar Erlendsson (IS), Bjöllukór Reykjanesbæjar (IS), o.fl.

Gloomy Holiday: Klassísk jólalög í tregafullum búning að hætti Sigur Rósar. Fram koma: Alexis Taylor, Peaches, Björgvin Halldórsson, Daníel Ágúst, Helga Möller, Helgi Björns, Katrína Mogensen úr Mammút, Laddi, Ragga Gísla, Sigga Beinteins og Svala. Samúel Jón Samúelsson stjórnar hljómsveit og útsetur. Nánar hér.

Kvikmyndir: 
Disaster Playground | Dr. Nelly Ben Hayoum
Draumalandið | Andri Snær Magnason

28. desember (fimmtudagur)Kevin Shields (My Bloody Valentine)  (IR), Gus Gus (IS), Kaitlyn Aurelia Smith (US), Mary Lattimore (US), Alex Somers (US), Mammút (IS), Kórus (IS), Kjartan Holm & Caleb Smith (IS/US), Jo Berger Myhre & Ólafur Björn Ólafsson (NO/IS), Piparkökukeppni, Bergrún (IS), o.fl. 

Kvikmynd: Heima | Dean DeBlois

29. desember (föstudagur)
Mogwai (SCT), Peaches (CA), Dan Deacon (US), Íslenski dansflokkurinn (IS)*, Mary Lattimore & Julianna Barwick (US), Kristín Anna IS), Dustin O‘Halloran (US), Julianna Barwick (US), JFRD (IS), Alex Somers (US), Hugar (IS), SiGRÚN (IS), Brassgat í bala (IS), Rex Pistols (IS), o.fl.

Kvikmynd: Undir trénu | Daníel Bjarnason

30. desember (laugardagur)
Jarvis Cocker (UK), Stars of the Lid (US), Sin Fang, Sóley & Örvar Smárason (IS), Ulrich Schnauss (DE), Íslenski dansflokkurinn (IS)*, Amiina (IS), Gyða (IS), Alex Somers (US), Mr. Silla (IS), Liminal – Sigur Rós Soundbath (IS/US), Eiríkur Orri Ólafsson (IS), o.fl.

Kvikmynd: The Show of Shows | Hilmar Örn Hilmarsson

---

* Íslenski dansflokkurinn flytur nýtt verk við tónlist Sigur Rósar.

Til tónleikagesta á Sigur Rós í Eldborg: Athugið að tónleikar Sigur Rósar verða ekki á sama tíma og tónleikar stærstu atriða á Norður og niður.

Komdu og gakktu til liðs við vini og vandamenn Sigur Rósar og taktu þátt í þessu stórkostlega partíi milli jóla og nýárs. Harpa verður smekkfull af gleði og ótrúlegum uppákomum!

Tónleikum Jóhanns Jóhannssonar hefur verið aflýst á Norður og niður vegna ferðatengdum vandamálum. Í stað hans tilkynnum við tvö sérstök atriði á föstudeginum: Mary Lattimore í samstarfi við Juliönnu Barwick auk þess sem Kristín Anna endurtekur tónleika sína þar sem mun færri komust að en vildu.

Athugið að passinn á hátíðina veitir ekki aðgang að tónleikum Sigur Rósar í Eldborgarsal.  Miðar á þá tónleika eru uppseldir. Fólki sem á miða á tónleikana býðst að kaupa passa á Norður og niður á sérstöku tilboðsverði en hafa verður samband við miðasölu til að ganga frá þeim kaupum í síma 5285050 eða í netfangið midasala@harpa.is.

Umsjón: SENA LIVE