Tix.is

Um viðburðinn

Sunnlendingar og sveitungar þeirra (og allir hinir): HAM á Húrra! Hljómsveitin fagnar útgáfu hljómplötunnar Söngvar um helvíti mannanna með tvennum tónleikum á Húrra dagana 22. og 23. júní. Góðir gestir hita mannskapinn upp áður en HAM stígur á stokk. Miðasala er á tix.is. HAM á Húrra er gríðarlega öflug skemmtun!

HAM sendir frá sér sína 3. hljóðverðsplötu nú í júní og hefur hún fengið nafnið: Söngvar um helvíti mannanna. Það er hljómplötuútgáfan Sticky sem gefur út. Gripurinn fæst í öllum betri hljómplötuverslunum og á helstu efnisveitum og verður fáanlegur bæði sem vínyl og geisladiskur.