Tix.is

Um viðburðinn

Kool and the Gang sem óhætt er að segja að séu konungar diskótónlistarinnar hafa boðað komu sína til Íslands og munu halda eina tónleika í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 10. júní næstkomandi.

Það er sannarlega mikið fagnaðarefni fyrir unnendur rythmiskrar toónlistar að fá þessa eðal snillinga til landsins.

Kool and the Gang er í hugum margra helsti fánaberi diskótónlistarinnar. Allir þekkja þeirra vinsælustu lög; einsog Celebration, Get Down On It, Fresh, Joanna, Jungle Boogie, Ladies Night og fleiri. Hljómsveitin var stofnuð árið 1969 og hefur starfað óslitið síðan. Í upphafi var funk og djass áberandi í hljómi sveitarinnar en seinna meir urðu þeir diskóinu að bráð. Kool and the Gang þykja afburðagóð tónleikasveit og þeir mæta með stóra hljómsveit í Eldborg og má telja víst að veislan sem þeir hyggjast bjóða uppaá verði með þeim eftirminnilegri sem sést hefur í þeim góða sal. Miðasala hefst miðvikudaginn 10. maí

Sérstakir Party miðar verða einnig til sölu og gilda þeir í eftirpartý og skemmtilegheit með hljómsveitinni. Partýið fer fram í Hörpu og Daddi Disco mun snúa nokkrum góðum diskósífum fyrir gesti.