Tix.is

Um viðburðinn

Hörðustu aðdáendur Ljótu hálfvitanna vita yfirleitt nokkurn veginn að hverju þeir ganga þegar þeir mæta á Græna hattinn. Hæfileg blanda af þekktustu smellum hálfvitanna, minna þekktum smellum og dassi af algerlega óþekktum ekkismellum, rammað inn með ábyrgðarlausu gamanmáli. Það sem aðdáendur vita hins vegar ekki er að á bakvið hvern einasta settlista eru harðvítugar rökræður og á köflum blóðugar illdeilur um hvaða 18 lög skuli spila. En nú verður breyting þar á.

Einn af skarpari hálfvitunum benti á að hálfvitar eru 9 og 2x9 eru 18. Því var ákveðið að prófa það fyrirkomulag að hver hálfviti velji 2 lög á þessum tónleikum, algerlega eftir eigin smekk og samvisku. Það má því reikna með vægast sagt óvenjulegum lagalista á þessum tónleikum því smekkur hálfvitanna endurspeglar alls ekki vilja þjóðarinnar.

Tónleikarnir hefjast kl. 22 bæði kvöldin, húsið opnað klukkutíma fyrr.