Tix.is

Um viðburðinn

UPPSELT ER Á TÓNLEIKANA!

Eitt allra heitasta nýstirni popp- og hip hop senunnar er á leiðinni til landsins! Hinn eini sanni Post Malone mun spila í Silfurbergi, Hörpu, þann 11. júlí 2017. Alexander Jarl og Auður hita upp. Nánar hér um það.

DAGSKRÁIN: 
21.00 Húsið opnar 
22.00 Auður 
22.25 Alexander Jarl 
23.00 Post Malone 
00.00 Áætlaður endir* 
* Dagskráin getur riðlast og er birt með fyrirvara um breytingar.

Post Malone er sjóðandi heitt nafn þessa dagana en hann hefur slegið rækilega í gegn með lögum á borð við „Congratulations“ og „White Iverson“ auk þess sem hann hitaði víða upp fyrir vin sinn Justin Bieber á ferðalagi hans um heiminn á síðasta ári.

Lagið „White Iverson“ er sannkallaður risasmellur; náði 1. sæti á Rhythm Radio listanum, er þreföld-platínum smáskífa, hefur verið streymt yfir 250 milljón sinnum á Spotify og er með rúmlega 280 milljón áhorf á YouTube og Vevo.

Ævintýrið hófst þegar hann setti „White Iverson“ á SoundCloud í febrúar 2015; um leið byrjuðu nöfn á borð við Wiz Khalifa og Mac Miller að tvíta um hann, Complex og Noisey lofuðu hann í bak og fyrir, hann fékk frábær gigg á stórum tónlistarhátíðum og stóru útgáfurisarnir hófu að berjast um hann. Kanye West, Jay-Z og 50 Cent buðu sig fram sem samstarfsfélaga. Í ágúst sama ár samdi hann við Republic Records.

Hans fyrsta plata í fullri lengd, Stoney, leit svo dagsins ljós 9. desember 2016.  Í dag er hann nýkominn af Justin Bieber heimstúrnum og ferðast nú um allan heim með helling af glænýju efni, en inn á milli tónleika kíkir hann í heimsókn hjá Seth Meyers og Jimmy Kimmel.

Ekkert aldurstakmark er á tónleikana sjálfa, en áfengi er eingöngu selt á afmörkuðum svæðum og 20 ára aldurstakmark er inn á þau.

Allir hlutir sem gætu valdið skaða eru bannaðir, t.d. hnífar, skæri, kollar, regnhlífar eða tússpennar. Myndavélar og upptökubúnaður er með öllu bannaður.

Umsjón: Sena Live