Tix.is

Um viðburðinn

X977 kynnir Jack Rocks: Guns N‘ Roses - Rokkmessa.

Það er kominn aftur tími til að heimsækja helstu slagara af meistarastykkinu Appetite for Destruction sem fagnar 35 ára afmælinu á þessu ári. Aðrir ópusar og þrusu smellir sveitarinnar Guns N´ Roses fá að fylgja með á einstökum viðburði.

Þetta er ekki í fyrsta né síðasta skiptið sem Guns N’ Roses rokkmessur verða haldnar hér á landi enda alltaf vel sóttir og gríðarlega skemmtilegir viðburðir. Meðlimir meðal annars hljómsveitanna Dr. Spock, DIMMU og Skálmaldar sjá til þess að þú fáir rokkið beint í æð í bestu mögulegum gæðum. Þessi viðburður var áætlaður 2020 en frestaðist út af einhverjum vírusi sem gerði tóm leiðindi um víða veröld. Það er því uppsöfnuð rokk hlussa sem þarf að leysa úr læðingi á Húrra 3. Júní.


Flytjendur:
Axl Rose: Stefán Jakobsson
Slash: Davíð Sigurgeirsson
Izzy Stradlin: Franz Gunnarsson
Duff McKagan: Jón svanur Sveinsson
Steven Adler: Jón Geir Jóhansson